Mánudaginn 9. febrúar kl. 15 verður haldin aðalfundur FUMÍS 2026.
Fundurinn fer fram í húsakynnum Umhverfis- og orkustofnunar að Suðurlandsbraut 24.

Kveðið er á um dagskrá aðalfundar í samþykkt um félagið og er hún eftirfarandi:

  1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
  2. Skýrsla stjórnar lögð fram
  3. Reikningar lagðir fram til samþykktar.
  4. Tillögur til breytinga á samþykktum eða lögum.
  5. Ákvörðun félagsgjalda
  6. Kosning stjórnar
  7. Kosning skoðunarmanna reikninga
  8. Önnur mál.

Engar tillögur um breytingar á samþykkt um félagið bárust stjórn innan frests.

Samkvæmt 7. gr. samþykktar um félagið skal stjórn skipuð fimm aðilum sem kosnir eru til tveggja ára í senn auk þess sem heimilt er að kjósa allt að tvo varameðlimi til 2 ára í senn.
Á stofnfundi voru þrír stjórnarmeðlirmir kosnir til tveggja ára og er því tímabili að ljúka. Á aðalfundi verður því kosið um þrjár stöður í stjórn. Erla Guðrún Hafsteinsdóttir og Kristín Kröyer gefa kost á sér áfram til stjórnarsetu en Ríkharður Friðriksson hyggst draga sig í hlé. Félagsfólk er hvatt til að gefa kost á sér til stjórnarsetu. Tilkynna þarf um framboð í síðasta lagi á aðalfundi. Verði fleiri í framboði en sem svarar stöðum verður kosið á milli frambjóðenda.
Á aðalfundi 2025 var kosið í tvær stöður varameðlima í stjórn til tveggja ára. Báðir varaaðilar hafa óskað lausnar frá embætti og því eru stöður varameðlima lausar og er félagsfólk hvatt til að gefa kost á sér í þær. Tilkynna þarf um framboð í síðasta lagi á aðalfundi. Verðir fleiri í framboði en sem svarar stöðum varameðlima verður kosið á milli frambjóðenda.

Á undan fundi eða kl. 14 er stefnt að því að halda fræðsluviðburð á sama stað og aðalfundurinn fer fram og verður það auglýst sérstaklega.

Vonumst til að sjá sem flest á aðalfundinum.

Kær kveðja,
Stjórn FUMÍS

Share this post