Fumís stendur fyrir grunnnámskeiði í sýnatöku úr jarðvegi og grunnvatni, í samvinnu við Umhverfisstofnun 16. til 17. október 2024. Kennarar námskeiðsins eru sérfræðingar frá NGI í Noregi. Námskeiðið fer fram í húsnæði Verkís að Ofanleiti 2. Hámarksfjöldi þátttakenda er 30. Námskeiðið verður aðeins haldið ef það næst lágmarksfjöldi þátttakenda. Við bendum fólki á að sækja um niðurgreiðslu hjá stéttarfélögum.
Námskeiðið 16.-17. október er fullbókað. Við vonumst til að geta náð nægilegri þátttöku til að halda auka námskeið dagana 14. til 15. október. Skráðu þig endilega og þá ferðu á biðlista.