Búið er að opna fyrir skráningu á eftirfarandi námskeið haustið 2025. Það er takmarkaður sætafjöldi, fyrstur kemur, fyrstur fær.
Námskeið 1: Grunnnámskeið í sýnatöku, 14-15. október 2025
Grunnnámskeið í sýnatöku úr jarðvegi og vatni í samvinnu við Umhverfig- og orkustofnun. Kennarar á námskeiðinu eru sérfræðingar frá Norconsult í Noregi. Farið verður yfir helstu atriði sem koma að grunnrannsóknum og sýnatöku á menguðum jarðvegi. Einnig verður farið í vettvangsferð þar sem sýndar verða helstu aðferðir sýnatöku.
Námskeið 2: Huglægt svæðislíkan, 16. október 2025
Námskeið í gerð huglægs svæðislíkans (e. conceptional site model). Huglægt svæðislíkan er eitt af lykilatriðum í mengunarrannsóknum. Farið verður yfir undirstöðuatriði mismunandi módela og kosti þeirra og galla. Einnig verða hópverkefni þar sem þátttakendur geta spreitt sig á að gera huglægt svæðislíkan.
